2.4.2008 | 19:59
Jakkar
Meðal jakkatrenda fyrir sumarið eru stuttir og svo stórir jakkar. Stuttir jakkar henta einstaklega vel í sumarmánuðum, þar sem þeir eru oft stutterma og opnir, og þar af leiðandi léttir í hitanum. Flott er klæðast þeim sem yfirhöfn við sumarkjóla. En þeir henta einnig vel við mittisháar buxur eins og Luella sýndi. Þeir draga athygli að mittinu og eru því mjög kvenlegir.
Jakkar í yfirstærðum (oversized) hafa verið vinsælir síðustu ár. Þeir bera með sér svolítinn rokkfíling og eru oftast það stórir að þeir gætu verið karlmannsjakkar. Það er því best að halda jafnvægi á klæðnaðinum - ef jakkinn er stór, þá er best að vera annað hvort í þröngum buxum eða stuttu pilsi/stuttbuxum. Alexander Wang hélt sýnum jakka í hráum anda og ýtti ermunum upp. Sniðið á jakkanum frá Anna Molinari er nokkuð beint og í raun er hann frekar sniðlaust, þess vegna er smart að hafa svolítið volume í pilsinu.
Trend | Breytt 5.4.2008 kl. 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)