Færsluflokkur: Trend
29.2.2008 | 16:52
Vor og sumartískan 2008
Ég ætla að gleðja ykkur lesendur á þessum yndislega föstudegi með flottustu trendunum fyrir sumarið. Ég veit að þið eruð örugglega búin að sjá eitthvað af vor og sumartískunni í tímaritum og á netinu, en ég hef legið yfir sýningunum og valið mín uppáhalds trend fyrir vor og sumar. Allt er þetta eitthvað sem á einn eða annan hátt er hægt að færa yfir í daglegt líf, þ.e.a.s ekkert of frumstætt. Þetta ætti að vera fínn innblástur fyrir sumarinnkaupin, þar sem verslanir eru í óða önn að taka upp nýjar vörur.
Klikkið á myndirnar til að sjá þær stærri og skýrari
(klikkið svo aftur til að fá myndina enn stærri í nýjum glugga)
Trend | Breytt 5.4.2008 kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2008 | 16:47
Lúxus í Mílanó
Tískuvikan í Mílanó fyrir næsta vetur var í vikunni sem var að líða og það var nokkuð mikið um lúxus eins og venjulega. Við erum að tala um loðfeldi, glamúr og eðalefni. Í stað þess að fjalla um hverja sýningu fyrir sig ætla ég að skipta þessu niður í trend að þessu sinni.
Hjá Gucci, Moschino og Roberto Caballi mátti sjá áhrif frá Rússlandi með þjóðlegum munstrum. Í bland við rússneska þemað var svolítill rokkandi og hippaleg snið.Sokkabuxur í öllum mögulegum litum; grænum, fjólubláum, appelsínugulum, rauðum og bláum voru virkilega áberandi hjá hönnuðum eins og Bottega Veneta, Emilio Pucci, Iceberg og Moschino. Litirnir voru yfirleitt ekki mjög sterkir og oftar en ekki harmoneruðu sokkabuxurnar við skóna og dressið.
Þessi týpísku ítölsku munstur voru hjá hönnuðum Maruizio Pevoraro, Missoni og Emilio Pucci.
Hjá öllum stóru tískuhúsunum mátti sjá loðfeldi. Þeir voru stór partur af sýningum Marni, Fendi og Gucci.
Skíðalúkkið með tilheyrandi loðkrögum og dúnúlpueffektum var bæði á sýningarpöllum Emilio Pucci og Iceberg.
Iceberg, Roberto Cavalli og MaxMara áttu það sameiginlegt að sýna grófar prjónaflíkur, oft með skemmtilegum smáatriðum eins og fléttum.
Skautaskórnir halda áfram frá þessum vetri til þess næsta eins og var að sjá hjá Missoni, Prada, Iceberg og Emilio Pucci. Skautaskórnir voru í flestum tilfellum reimaðir upp að ökkla en náðu einnig upp að hnjám eða jafnvel upp á læri.
Sýning Prada einkenndist af blúndum og aftur blúndum. Einnig mátti sjá blúndur í sýningum La Perla, Roberto Cavalli og Versace.
Glamúrinn var ekki langt undan og glitrandi steinar prýddu margar flíkurnar. Lína MaxMara var nokkuð stílhrein, en glamúrinn poppaði hana þó upp. Aðrar sýningar sem innihéldu glamúr og glans voru t.d. 6267, Alberta Ferretti og Derercuny.
Trend | Breytt 5.4.2008 kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.2.2008 | 17:56
Skótískan fyrir sumarið
Eins og margir (konur þá aðallega) er ég mikið fyrir skó, og finnst mér alltaf jafn gaman að skoða skóna hjá hönnuðunum. Fyrir næsta sumar var nokkuð mikið um praktísk trend sem hafa verið gangandi síðustu tímabil, en einnig var nokkuð mikið um frumstæða hönnun á sjálfum hælunum á skónum. Ég ætla nú ekki að fara nánar útí það, heldur frekar í trendin sem gætu raunverulega gengið í hversdagsleikanum.
Það fyrsta eru gladiator sandalarnir, og minna þeir helst á rómverska hermenn. Þessir sandalar urðu vinsælir fyrir nokkrum árum og hafa birst aftur síðustu sumur. Ég hélt í raun að þeir væru búnir, en þá komu þeir á ný, frakkari en áður hefur sést. Chanel sýndi í resort línunni sinni fyrir 2007 hné-háa sandala, og má segja að það hafi verið upphafið af þessari nýju gerð. Fyrir næsta sumar var ýktasta útgáfan án efa frá Balenciaga. Givenchy voru í svipuðum hugleiðingum, nema héldu sig við svarta litinn og í leðri. Dries Van Noten sýndu lága, hælaða og nokkuð praktískari en áðurnefnda. D&G voru samt sem áður með hefðbundnustu útgáfuna, en þeir voru flatbotna í brúnum lit - mjög flottir fyrir sumarið.
Næst eru það svokallaðir crisscross hælar. Þeir eru oft í platform stíl. Dsquared2 voru með nokkuð elegant útgáfu af þessari týpu og var krossinn þunnur. Burberry sýndu þá með sokkum í dökk gráum lit, virkilega flott. Anna Sui hannaði skemmtilega litríkt par, en Thakoon var svo með mjög flott lúkk á þessum skóm, en þeir voru með flóknari krossum en hinir.
Klassísku mary-janes skórnir eru alltaf jafn sætir. Skórnir frá Giambattista Valli voru 'sky-high' og ekki fyrir hvern sem er að ganga á. Alexander McQueen var einnig með bleika, en sýndi þá með snákaskinni, fyrir svolítið meira edgy lúkk. Hællinn á Missoni skónum var lægri en á hinum og frekar spes. YSL eru þekktir fyrir frekar einfaldari hönnun en flókna og skórnir frá þeim sýna það vel.
T-bar trendið er ekkert ósvipað og mary-janes skórnir. Fyrir þá sem vita ekki, þá er T-bar nafnið dregið af því að ólin myndar T framan á skónum. Burberry voru með lúxus par og enn og aftur eru þeir með sokkana. Lanvin sýndu nokkuð þykkan hæl, og voru þeir frekar 'chunky'. Zac Posen var í glamúr fíling með smá glitrandi steinum framan á.
Á sýningunum fyrir sumarið sáust nokkuð mikið af skóm með smáar sylgjur, sem gefa skónum bara flott yfirbragð. Jean Paul Gaultier var í nokkuð dramatískum hugleiðingum með sitt par, en engu að síður flott hönnun. Þeir eru flottir skórnir frá Marni í tveim litum, stílhreinir en samt áhugaverðir litir. Lanvin skórnir voru með smá safari fíling í dökkbrúnu leðri. Gucci skórnir eru einir of mínum uppáhalds, liturinn er æði.
Það var nokkuð mikið um þunnar reimar á háhæluðum skóm. Alexander McQueen, Balenciaga og Peter Som sýndu þær með fínlegum slaufum. Reimar Givenchy voru þunnar leðurólar. Hönnun Balenciaga og Peter Som minnir svolítið á oxford skóna sem hafa verið núna í vetur og á síðasta ári. Alexander McQueen sýnir skemmtilega hönnun og hefur reimarnar fyrir ofan ökklann.
Þetta eru svona helstu runway trendin en svo er alveg helling af fleiri töff skóm fyrir sumarið. Það ætti engum að leiðast að skoða alla flottu hönnunina.
Trend | Breytt 5.4.2008 kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)