24.3.2008 | 13:05
Hártíska sumarsins
Fyrir sumarið eru nokkur hártrend í gangi, ef marka má sýningarpalla hönnuðanna. Mikið er um úfið hár en einnig mátti sjá fágaðra útlit þar sem hárið var sleikt aftur í snúð eða tagl. Hér koma myndir og lýsingar á aðaltrendum sumarsins.
Klikkið á myndirnar til að sjá þær stærri
Fegurð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2008 | 13:18
Grískir gyðjukjólar
Fyrir sumarið voru grískir kjólar nokkuð áberandi hjá hönnuðunum. Kjólarnir eru innblástnir af grískum gyðjum til forna. Þeir eru í dreymandi efnum með rykkingum og oft með aðra öxlina bera. Það sem er svo æðislegt við þessa kjóla er kvenleikinn, sniðið leikur um vöxtinn þótt að stundum séu þau víð. Til að forðast of víð snið, getur verið flott að vera með þunnt bellti í mittinu.
Á sýningarpöllunum voru þeir bæði stuttir og skósíðir. Litirnir voru allt frá mildum pasteltónum til skæra lita. Það er mikill fjölbreytileiki og því geta allir fundið snið og liti sem henta. Þótt þessir kjólar séu oftast í fínni kantinum er tilvalið að klæðast þeim casual á fallegum sumardegi. Bæði háir hælar og fallegir sandalar henta, og því hægt að nota við ýmis tilefni.
Trend | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2008 | 18:48
Lagerfeld Confidential
Myndin sem allir tískuunnendur hafa beðið eftir er nú komin á DVD. Myndin heitir 'Lagerfeld Confidential' og sýnir ýtarlega frá tískuhönnuðinum Karl Lagerfeld. Karl er þekktur fyrir að vera hönnuður Chanel tískuhússins ásamt því að hanna línu undir eigin nafni. Fylgst er með degi í lífi hans bæði frá vinnu hans og persónulegu lífi. Myndin leyfir fólki að skyggnast inní draumaveröld tískuíkonsins sem allir elska og dá.
Áður hafa verið gerðar tvær myndir um Karl. Myndin 'Karl Lagerfeld Is Never Happy Anyway' var gerð árið 2000. Árið 2006 komu svo út heimildarþættirnir 'Signé Chanel' sem naut mikilla vinsælda. Með því að smella á titlana hér á undan getiði þið horft á myndirnar á YouTube.
Hægt er að kaupa myndina á lagerfeldfilm.com.
Hönnuðir | Breytt 5.4.2008 kl. 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2008 | 18:21
Það besta frá NY, París & Mílanó
Ef þið hafið ekki haft tíma eða nennu til að fylgjast með öllum sýningum á nýafstöðnum tískuvikum, þá hefur Style.com komið til bjargar með hnitmiðuðum myndböndum af því besta í hverri tískuborg. Viðtöl við hönnuði og smá brot af línunum ásamt álitum tískufólksins er eitthvað sem enginn vill missa af!
New York
Mílanó
París
Tískusýningar | Breytt 5.4.2008 kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2008 | 14:35
Sumarlína H&M
Verslanir | Breytt 5.4.2008 kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2008 | 15:14
Prada töskur
Það er eitthvað við töskurnar frá Prada, ég fell alltaf fyrir þeim. Síðasta haustlína innihélt nokkrar útgáfur af fallegum töskum. Þær sem urðu vinsælastar voru bæði í möttu leðri og með lakk áferð í svokölluðu 'colour bleed', þar sem dökkur litur nánast svartur blæddi inní ljósbrúnan. Aðrar töskur voru ýmist úr leðri í grænum og appelsínugulum tónum eða úr loðnu efni.
Ein taska úr sumarlínunni hefur orðið séstaklega vinsæl. Það er 'the fairy bag' eða álfadísartaskan. Á henni er listræn teikning eftir listamanninn James Jean af álfadísum í svörtu og jarðlitum á hvítum bakgrunni. Að hafa svoleiðis tösku á handleggnum er nánast eins og að ganga með listaverk. Sienna Miller og Jennifer Love Hewitt eru meðal þeirra mörgu stjarna sem eiga eintak, en taskan seldist upp á tveimur dögum í Neiman Marcus og nú þegar er um þriggja mánaða biðlisti. Hún er úr skinni af dádýri og kostar um 150.000 krónur. Það er þó hægt að fá minni veskisútgáfu fyrir þriðjung stærri töskunnar.
Töskurnar sem eru væntanlegar fyrir næsta vetur eru ekki alveg eins spennandi að mínu mati en engu að síður mjög flott hönnun. Litirnir eru svartur, brúnn og beige á leðri og í blúndum en blúndur voru gegnum gangandi í allri línunni. Pífur voru notaðar til að gefa skemmtileg smáatriði.
Aukahlutir | Breytt 5.4.2008 kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 12:27
Batman & Bambi
Tíska þarf ekki alltaf að þýða alvarleiki - í sumarlínunum mátti sjá ýmsar teiknimyndapersónur og ofurhetjur í formi munsturs. Luella tók þennan innblástur hvað hæst með Batman munstri, en hún sýndi bæði boli og jakkaföt í munstrinu. Dádýrið Bambi bar einnig fyrir sjónir í sýningum Giles og Vivienne Westwood. Í tilfelli Giles var það kvenlegur kjóll og hattur sem báru munstrið en Westwood sýndi Bamba á stuttermabol. Dolce og Gabbana voru með hestamunstur á þykkri prjónapeysu fyrir sýningu D&G. Peysan minnti heldur mikið á þjóðlegar ullarpeysur, en gyllta pilsið gaf þó sveitafílingnum svolítið glys. Höfrungarnir hennar Stellu McCartney voru hressandi munstur og voru ef til vill eilítið ungbarnalegir á þessum ljósbláa bakgrunni. Marc Jacobs toppaði þó allt þegar hann gekk út í sýningu Louis Vuitton með Svamp Sveinsson á tösku. Það vakti mikla kátínu sýningargesta enda eflaust bara gert fyrir húmorinn.
Trend | Breytt 5.4.2008 kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 22:54
Fyrirsætur baksviðs
Nú eru allar tískuvikurnar fjórar í París, Mílanó, New York og London afstaðnar og þótt það sé alltaf gaman að sjá það sem hönnuðurnir sýna hverju sinni, er einnig skemmtilegt að sjá hverju fræga fólkið í fremstu röðinni klæðist og fyrirsæturnar baksviðs.
Sérstaklega finnst mér stíll fyrirsætna mjög flottur. Þær hafa náttúrulega margar hverjar nánast fullkominn vöxt og því fer þeim nánast allt, en það er samt hægt að fá góðar hugmyndir frá þeim. Klæðnaður þeirra einkennist mikið af casual, basic flíkum sem virðast vera í ódýrari kantinum - því er svo blandað saman við hönnunarvörur (sem þeim er reyndar stundum gefið). Gallabuxur, leggings og sokkabuxum er klæðst við þægilega víða boli, casual kjóla og fínar prjónaflíkur. Yfirhafnir eru oftar en ekki leðurjakkar og blazer jakkar, og stígvél eru vinsælt skótau.
Efst til vinstri er Sasha Pivovarova baksviðs hjá Anna Sui, gróf stígvélin harmonera vel við mildu litina að ofan. Næst er Behati Prinsloo baksviðs hjá Derek Lam, einnig í nokkuð grófum stígvélum og þröngum kjól innan undir popp/rokk bol. Abbey Lee baksviðs hjá Calvin Klein í síðum, víðum bol og grófri peysu yfir - kósý lúkk en samt töff. Til hægri er svo Sheila Marquez baksviðs hjá Matthew Williamsson, gráar oversized buxur, leðurjakki og peysa.Í neðri röð til vinstri eru Kasia Struss og Vlada Roslyakova baksviðs hjá Donna Karan, þær eru smart í gallabuxum, peysu og jakka - virkilega 'easy going'. Yfir í aðeins fínna, Agnete Hegelund baksviðs hjá Marc Jacobs í fínum kjól og jakka, þunn peysan yfir kjólinn gefur jarðbundnara útlit. Maryna Linchuk baksviðs hjá Rag&Bone í jakka í skólabúningastíl og hnéháum stígvélum, Prada taskan er náttúrulega bara flott. Coco Rocha til hægri baksviðs hjá Rag&Bone, mjög laid back snið og plain litir.
Chanel Iman baksviðs hjá Bottega Veneta er lengst til vinstri í skemmtilegri samsetningu af dökkólívugrænum og vínrauðbleikum. Við hlið Chanel er Mariacarla Boscono baksviðs hjá Missoni í glansandi leggings við lakkskó og flottum jakka. Inguna Butane baksviðs hjá Bottega Veneta í dökkgráum jakka í karlasniði við ljósgrá háhæluð stígvel í snákaskinni. Til hægri, þær Daiane Conterato og Carolina Pantoliani baksviðs hjá Moschino eru flottar í biker leðurjakka og víðum peysujakka. Vlada Roslyakova er í litríkum bol og klút baksviðs hjá Hussein Chalayan. Alana Zimmer baksviðs hjá Karl Lagerfeld í týpískri gallabuxna og blazer jakka samsetningu. Næst er Maryna Linchuk baksviðs hjá Viktor&Rolf í gallabuxum í rosalega flottum bláum lit og loðvesti, aftur með Prada töskuna með glansleðuráferð.Stíll | Breytt 5.4.2008 kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2008 | 16:10
Ljóst gallaefni
Aðaltrendið í gallaefnum fyrir sumarið virðist vera frekar ljóst. Christopher Kane sýndi gallaefni sem var búið að tæta og var það í mjög fölum lit. Alexander Wang var einnig með ljóst gallaefni en Karen Walker var með óþvegið, en aðeins dekkra efni. Það er spurning hvort þetta verði stórt trend, en enn sem komið er hefur ekki mikið borið á því.
Það er þó tilvalið að lýsa upp á gallefnið fyrir sumarið og fá sér ljósar gallabuxur sem ná rétt fyrir ofan ökklann (í anda Alexander wang) og para saman við þunna blússu í blómamunstri a la Luella, eða gallabuxur í ljósum litum með extra víðum skálmum eins og sést á Sophiu Bush. Persónulega finnst mér fallegra þegar ljóst gallaefni er óþvegið og í frekar fölum tónum og það þarf að passa svolítið hvað fer saman við.
Trend | Breytt 5.4.2008 kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2008 | 15:29
Clutches í slönguskinni
Svokallaðar clutches hafa verið vinsælar undanfarið, en það eru frekar litlar og meðfærilegar töskur. Þær eru hið fullkomna svar við trendinu á töskum í yfirstærðum sem hafa verið helsta töskutrendið síðusta árið. Clutches hafa bæði sést á rauða dreglinum og á götustílsbloggsíðum. Þessar töskur hafa vanalega einungis verið notaðar í fínni tilefnum, en nú eru þær farnar að sjást á stjörnunum á daginn. Flottast þykir að hafa þær svolítið stórar enda þægilegra svo allar nauðsynjar komist ofan í. Töskurnar hafa oftast enga ól og er því haldið á þeim með annarri hendi. Þær voru mjög vinsælar á sýningarpöllum fyrir sumarið og var slöngu- og krókódílaskinn vinsælt efni.
Vintage verslanir hafa ágætt úrval af svipuðum töskum í slönguskinni, aðallega í svörtu, navy bláu og vínrauðu. Svo hef ég séð nokkrar í tískuverslunum, svo það er um að gera að hafa augun opin fyrir nýjasta trendinu.
Aukahlutir | Breytt 5.4.2008 kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)