Vor og sumartískan 2008

Ég ætla að gleðja ykkur lesendur á þessum yndislega föstudegi með flottustu trendunum fyrir sumarið. Ég veit að þið eruð örugglega búin að sjá eitthvað af vor og sumartískunni í tímaritum og á netinu, en ég hef legið yfir sýningunum og valið mín uppáhalds trend fyrir vor og sumar. Allt er þetta eitthvað sem á einn eða annan hátt er hægt að færa yfir í daglegt líf, þ.e.a.s ekkert of frumstætt. Þetta ætti að vera fínn innblástur fyrir sumarinnkaupin, þar sem verslanir eru í óða önn að taka upp nýjar vörur.

vortiskan1
 
vortiskan2
vortiskan3
vortiskan4
vortiskan5
vortiskan6

 vortiskan7

vortiskan8 

Klikkið á myndirnar til að sjá þær stærri og skýrari
(klikkið svo aftur til að fá myndina enn stærri í nýjum glugga)


Tískubransinn á Íslandi

Maður er alltaf að heyra að íslenski tísku- og hönnunarbransinn sé að stækka og alltaf fleiri og fleiri hönnuðir að koma fram á sjónarsviðið. Ég er sammála því að bransinn er að stækka og hönnuðum að fjölga og úrvalið þar af leiðandi aldrei verið eins meira, en það er þó alltaf hægt að gera meira og gera betur.

Ef við tökum fyrst fjölmiðla. Fyrir það fyrsta er enginn almennilegur fjölmiðill sem miðast að tískubransanum - hvort sem það er alþjóðleg tíska eða innlend hönnun. Við höfum Nýtt Líf sem ég myndi frekar kalla lífstílsstímarit frekar en tískutímarit, þar sem blaðið býður uppá svo margt annað. Það var þó að skipta um stefnu og það sem ég hef séð af nýju útgáfunni er í rétta átt. Þannig við í rauninni höfum ekkert almennilegt tískutímarit sem fjallar um útlenda tískustrauma og ýmislegt innlent í senn. Við þurfum ekki annað en að líta til Norðurlandanna þar sem hið danska Costume og sænska Modette eru mjög vinsæl tískutímarit. Hingað til hafa íslenskir hönnuðir mjög mikið þurft að treysta á 'munnlega auglýsingu' eða umfjöllun í dagblöðum. Munnlega auglýsingin er svo sem skiljanleg þar sem Ísland er nú ekki stórt og oft geta þær verið árangursríkar, en væri ekki miklu betra að hafa einhvern aðgengilegan (og fagmannlegan) miðil?

Ef við tökum næst fyrir eitthvað sem tengir hvað mest tískubransann saman fyrir utan tímarit og fjölmiðla, þá eru það tískuvikur. Margir hugsa til New York, Parísar, Mílanó o.s.frv og finnast kannski Ísland ekki vænlegur kostur fyrir svo stóran atburð, en tískuvikur eru þó algengar í mörgum minni borgum. Auðvitað eru þær þá bara í samræmi við stærð borganna og landanna og því augljóst að íslensk tískuvika yrði seint einhver alþjóðleg tískuvika. Það sem er samt svo gott við tískuvikur í stað einstaka tískusýninga, er að þær þjappa iðnaðinum saman. Hönnuðir fá jafnvel umfjöllun um sig í erlendum fjölmiðlum og því er auglýsingin mikil og tækifærin fyrir nýja hönnuði frábær. Ég veit að það var starfrækt íslensk tískuvika hér á landi í einhver ár og að mínu mati var hún ekkert æðisleg, þótt nokkuð hafi verið um flotta hönnun. Ég man nú ekki af hverju hún leystist upp, en mig minnir að skipulagsleysi eða ósætti hönnuða við skipuleggjendur hafi verið málið (ef einhver man hvað kom uppá, endilega segið mér!). Núna hinsvegar er bransinn búinn að stækka svo mikið, að almennileg tískuvika væri einungis til góðs.

Íslensk hönnun hefur einungis orðið til hins betra á síðustu árum og við erum að sjá meiri gæði. Við lítum meira til útlanda fyrir innblástur og þessi þjóðlega hönnun með tilheyrandi fiskaroði, minkafeldum og því öllu, er að hverfa. Ef ég þarf hins vegar að segja eitthvað sem mér finnst að mætti fara betur, þá getur hönnunin verið svolítið einsleg stundum, þ.e.a.s hönnuðir eru kannski að gera eitthvað svipað og aðrir. Einnig finnst mér svolítið um algjörlega ómenntaða 'hönnuði' sem eru að selja flíkur og annað. Þótt það sé ekkert að því að vera ómenntaður þá verða gæðin og handbragðið því miður ekki alltaf góð. Það er akkúrat þessi einsleita hönnun sem á hér við. Annars fagna ég öllum þessum nýju og fersku hönnuðum og það er rosalega gaman að sjá til dæmis hvað nemendur Listaháskólans, núverandi eða fyrrverandi, eru að gera spennandi hluti.

Ég veit að það eru eflaust einhverjir sem lesa þennan pistil og spyrja af hverju ég sé að velta þessu fyrir mér. Er Ísland ekki bara það lítið, að það er ekki markaður fyrir tískutímarit og skipulagða tískuvirðburði? En miðað við þróunina og ef við lítum á hvað Íslendingar eru uppteknir af tísku almennt þá er það mér hugsunarefni hvort ekki væri hægt að bæta stöðuna, bæði fyrir hönnuði og annað tískufólk, en einnig fyrir þá sem vilja njóta og fylgjast með tískunni.

Endilega komið með ykkar pælingar og skoðanir hvort sem þið eruð sammála og ósammála.


Lúxus í Mílanó

Tískuvikan í Mílanó fyrir næsta vetur var í vikunni sem var að líða og það var nokkuð mikið um lúxus eins og venjulega. Við erum að tala um loðfeldi, glamúr og eðalefni. Í stað þess að fjalla um hverja sýningu fyrir sig ætla ég að skipta þessu niður í trend að þessu sinni.

gucci
Hjá Gucci, Moschino og Roberto Caballi mátti sjá áhrif frá Rússlandi með þjóðlegum munstrum. Í bland við rússneska þemað var svolítill rokkandi og hippaleg snið.

milan-bottegaveneta
Sokkabuxur í öllum mögulegum litum; grænum, fjólubláum, appelsínugulum, rauðum og bláum voru virkilega áberandi hjá hönnuðum eins og Bottega Veneta, Emilio Pucci, Iceberg og Moschino. Litirnir voru yfirleitt ekki mjög sterkir og oftar en ekki harmoneruðu sokkabuxurnar við skóna og dressið.

mauriziopecoraro
Þessi týpísku ítölsku munstur voru hjá hönnuðum Maruizio Pevoraro, Missoni og Emilio Pucci.

marni
Hjá öllum stóru tískuhúsunum mátti sjá loðfeldi. Þeir voru stór partur af sýningum Marni, Fendi og Gucci.

emiliopucci
Skíðalúkkið með tilheyrandi loðkrögum og dúnúlpueffektum var bæði á sýningarpöllum Emilio Pucci og Iceberg.

iceberg
Iceberg, Roberto Cavalli og MaxMara áttu það sameiginlegt að sýna grófar prjónaflíkur, oft með skemmtilegum smáatriðum eins og fléttum.

milan-missoni
Skautaskórnir halda áfram frá þessum vetri til þess næsta eins og var að sjá hjá Missoni, Prada, Iceberg og Emilio Pucci. Skautaskórnir voru í flestum tilfellum reimaðir upp að ökkla en náðu einnig upp að hnjám eða jafnvel upp á læri.

prada
Sýning Prada einkenndist af blúndum og aftur blúndum. Einnig mátti sjá blúndur í sýningum La Perla, Roberto Cavalli og Versace.

maxmara
Glamúrinn var ekki langt undan og glitrandi steinar prýddu margar flíkurnar. Lína MaxMara var nokkuð stílhrein, en glamúrinn poppaði hana þó upp. Aðrar sýningar sem innihéldu glamúr og glans voru t.d. 6267, Alberta Ferretti og Derercuny.

Rumi

Stíll vikunnar er Rumi, 24 ára gömul stelpa frá San Diego. Rumi verslar mikið vintage og í ódýrum verslunarkeðjum, einnig eyðir hún einstöku sinnum í hönnunarmerki í töskum og skóm, en það tvennt getur gefið gæfumuninn.


Það sem gerir stíl hennar kannski einna mest sérstakan er samsetningin. Henni líkar þegar fólk er ekkert endilega í öllu flottu en samsetningin lætur það virka og gerir það smart, sem er góð lýsing á hennar eigin stíl. Hún poppar útlitið oft upp með litum, munstrum eða flottum skóm og töskum. 


Eitt gott ráð frá henni sem hún notar til að fríska upp á lúkkið án þess að kaupa eitthvað nýtt, er að draga fram eitthvað sem hún hefur ekki klæðst í einhvern tíma og svo ‘neyðir’ hún sig til að stílisera það öðruvísi en hún hafði áður gert og þar af leiðandi verður það ferskt aftur. Það er því í raun samsetningin sem skiptir öllu máli. 


Hún er með verslun á Ebay sem kallast Treasure Chest Vintage þar sem hún selur allar vintage vörur sem hún hefur keypt en eru ekki í hennar númeri. Það er hægt að finna margt frá 7., 8. og 9.áratugnum og að mínu mati er margt flott að sjá. Hún sendir til annara landa ef einhverjir eru áhugasamir.

 

stillrumi1

 stillrumi2

stillrumi3

stillrumi4

 

Sjáið fleiri myndir á blogginu hennar Fashion Toast

Eau de Rose

Eitt af því skemmtilegasta við tískutímarit að mínu mati eru tískuþættirnir/myndasyrpurnar. Franska Vogue er mjög framarlega á sviði tískuþátta þar sem mikil vinna og listræn hugsun hefur verið lögð í syrpunar. Annað en mörg tímarit þar sem fyrirsætunum er skellt í föt og myndirnar teknar inní stúdíói. Það er oft ekkert voðalega spennandi. Þrátt fyrir það þarf takan ekki að vera flókin og því ætla ég að setja hér nokkrar myndir úr tískuþætti úr mars tölublaði franska Vogue. Bakgrunnurinn er einungis hvít strönd og sjórinn og leyfir það bleika litnum að njóta sín. Það er rússneska fyrirsætan Sasha Pivovarova sem prýðir myndirnar.

eauderose1

eauderose3

eauderose5

eauderose6

eauderose9

eauderose10

Mikið af bleiku gæti einhverjir verið að hugsa, en hann er þó frískandi í skammdeginu þessi bjarti litur. Mér finnst bleiku tónarnir njóta sín mjög vel við bakgrunninn og stjarnan er notuð á flottan hátt, en stjörnumunstur og stjörnuhálsmen voru vinsæl á sumar sýningarpöllunum m.a. frá Chanel og Yves Saint Laurent. Hvað varðar hár og förðun, þá er ég ekki að fíla hárið, svolítið tjásulegt. Veit ekki alveg með augnförðunina, en er allavega ekkert yfir mig hrifin.

Allt í allt finnst mér þetta samt mjög smart.


Listrænt ferli Prada

pradass08

Fyrir neðan er myndband af innblæstrinum og listrænu hliðinni við gerð sumarlínu Prada. Það hvernig munstrin þróuðust út frá náttúrunni. Mjög flott gert og gaman að sjá fötin í víðari skilningi.


Lífsspeki frá Louis Vuitton

Rosalega flott auglýsing fyrir ferðatöskur frá Louis Vuitton. Dramatískt og fær mann til að hugsa svolítið. 

A journey


Frumleiki í London

Núna er tískuvikan í London búin og það er alltaf gaman að sjá ungu og upprennandi hönnuðina þar. Tískuvikan er ekki eins veigamikil og í New York og París en samt sem áður var alveg fullt af flottri hönnun. Notagildi er ekki efst í huga hjá mörgum hönnuðanna, aðallega þá hjá þessum yngri. Þannig voru kjólar sem minntu heldur á arkitektúr hjá Roksana Ilincic og Giles sýndi mjög svo óvenjulegan klæðnað. En eins og áður hef ég valið nokkra góða hönnuði að mínu mati.
.

armandbasi

Á sýningu Armand Basi, þar sem Markus Lupfer er í fararbroddi, mátti líta á ýkt snið í sterkum litum. Litasamsetningin á munstrunum var nánast barnaleg og sniðin báru svolítinn dúkkufíling. Lupfer sagði um sýninguna að maður ætti að hafa gaman af fötum og njóta lita.

christopherkane

Christopher Kane nær enn og aftur að koma öllum á óvart. Lína hans innihélt mikið af pallíettum og öðrum skreytingum. Það var þó enginn ýktur glamúr þar sem hann náði jafnvægi með því að para grófar peysur og saklaus, gegnsæ chiffon efni með öllu glitrinu.

.

louisegoldin

Lína Louise Goldin samanstóð af prjónaefnispeysum með tæknilegum munstrum og má segja að hún hafi sett peysuklæðnað á annað stig. Hún segist hafa blandað saman hefðbundnum munstrum inúíta við forritunarkóða tölvuforrita. Útkoman varð nokkurs konar 'geim eskimóar'.

.

meadhamkirchhoff
Í línu Meadham Kirchhoff mátti líta á skósíð pils sem voru ýmist pöruð með síðum peysum, þunnum blússum eða jafnvel loðfeldi. Einnig voru hefðbundnari pils í stíl vinnufatnaðar framakonu. Hönnuðirnir segjast hafa haft framakonuna í huga við gerð línunnar, konuna sem vill klæða sig eftir skapi. Þeir bjuggu því til línu sem innihélt nauðsynjarnar í fataskápinn þessa tilteknu týpu.


Danska tískuvikan

Á sama tíma og tískuvikan var í New York, var einnig tískuvika í Kaupmannahöfn (í þar síðustu viku). Það voru um 40 hönnuðir sem sýndu verk sín fyrir næsta haust og þar á meðal voru allavega þrír íslenskir; Steinunn Sigurðar, Mundi Design og svo merkið Andersen & Lauth. En það var mikið að skoða og ég setti saman nokkrar sem mér fannst áhugaverðar.

baumundpferdgarten
Á sýningu Baum un Pferdgarten var blandað svolítið saman kvenlegum stíl við ferskari, yngri stíl. Í byrjun var mikið um dökkbláan lit og hvítan í nokkuð fáguðum sniðum, en svo urðu litirnir ljósari og sniðin frjálslegri. Það var alltaf ákveðinn kvenleiki, þótt inná milli hafi sniðin verið lausari og litirnir djarfari. Það var sem sagt mikill fjölbreytileiki.

bruunsbazaar

Bruuns Bazaar byrjaði með svart og hvítt en svo voru litirnir allsráðandi, bæði navy blár, bleikur og svo var eitthvað um munstur. Það var minni kvenleiki ráðandi þarna en samt ýmis falleg smáatriði.


henrikvibskov

Henrik Vibskov er alltaf frumlegur og það fyrsta sem sýningargestir sáu var sýningarpallur skreyttur pastelgrænum frauðhólkum. Fyrirsæturnar gengu svo fram með tjull fyrir augunum og sýndu skemmtilega hönnun. Línan var nokkuð jarðbundnari en ég hafði búist við, fyrir utan einstaka glansandi spandex galla og leggings. Það er í raun ekki hægt að lýsa línunni í einu orði, en listrænt og frumlegt kemur samt fljótt upp í hugann. 
 .

noir

Línan frá Noir var með snert af lúxus, þar sem ríkmannleg efni eins og loðfeldur og leður kom við sögu. Klassísk snið voru höfð í hávegum þótt öllu jöfnu hafi nútímalegur blær verið yfir línunni. Litirnir voru einnig nokkuð klassískir, en sýningin var nánast öll svört og hvít.


.

stinegoya

Stine Goya er ungur og upprennandi danskur hönnuður og það mátti sjá á línunni hennar sem innihélt flott munstur og liti. Hún notaði röndótt mikið og mátti sjá nokkuð af fjólubláum og gylltum í bland við hefðbundnari liti.

.

woodwood

Það sem mér fannst mest spennandi við línu Wood Wood var litapallettan. Hún var nokkuð mild, en samt sem áður blönduðust sterkir litir eins og vínrauður fallega saman við þá mildu. Ég ætla að fylgjast með Wood Wood nánar næstu tímabil.


Þess má geta að leður leggins/þröngar buxur voru í mjög mörgum sýningum. Ýmist voru þær sýndar með svörtu að ofan eða munstruðu - með loðfeldi eða meira leðri. Kannski of mikið af því góða, en spurning hvort þetta verði trendið í haust?


Til að nálgast þessi merki á Íslandi, þá fæst Baum und Pferdgarten í Ilse Jacobsen og Henrik Vibskov og Wood Wood fæst í
KronKron. Þetta eru þó haust/vetrar línur, þannig þær koma þá ekki í verslanirnar fyrr en í haust.

Myndir frá copenhagenfashionweek.com


Lisaplace

Það er alltaf gaman að rekast á bloggsíður þar sem fólk setur myndir af klæðnaði hvers dags, og ennþá skemmtilegra þegar viðkomandi hefur flottan persónulegan stíl. Ég hef rekist á nokkrar sem mér finnst áhugaverðar og fylgist reglulega með nýjum færslum. Ein af þessum er sænsk stelpa sem á bloggsíðuna Lisaplace.

Það sem er kannski áhugaverðast við hana er að hún er fædd '94, sem sagt á 14.ári. Hún hefur þegar myndað virkilega flottan stíl þar sem hún blandar skemmtilega saman fötum frá stórum keðjum eins og H&M og Mango við vintage aukahluti eins og skó, töskur og klúta. Það er gaman að sjá svona unga stelpu sem tekur svolitla áhættu í fatavali og er greinilega ekki að reyna að falla inní hópinn.

Fyrir utan að setja inn myndir af fötum hvers dags má sjá virkilega flottar og listrænar ljósmyndir eftir hana. En hér á eftir koma svo myndir af flottum outfitum að mínu mati. Hún gæti ábyggilega veitt mörgum innblástur.

lisaplaceblog1
lisaplaceblog2
lisaplaceblog3
lisaplaceblog4
lisaplaceblog5
 

Myndir frá Lisaplace


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband