Ragnhildur Steinunn í hönnun frá Júniform

Ég sá smá hluta af Laugardagslögunum í kvöld á Rúv, og eitt af því skemmtilegasta við þann þátt (að mínu mati) er að sjá hverju Ragnhildur klæðist.

Ég fylgdist svolítið með þættinum í haust þegar það var mikið rætt um fatnaðinn hennar, sem var oftar en ekki frá Júniform. Birta í Júniform er í miklu uppáhaldi hjá mér af íslenskum hönnuðum, og margt mjög flott sem hún er að gera.

Í þættinum í kvöld tók ég strax eftir kjól sem Ragnhildur var í, en datt samt ekki í hug að það væri úr smiðju Júniform. Ég var svo á síðunni þeirra áðan og sá kjólinn (eða allavega mjög svipaðan). Mér finnst hann með því besta frá Júniform sem ég hef séð í nokkurn tíma.

kjoll

Mynd er af juniform.net


Fyrsta færslan

Velkomin á bloggið.

Ég hef mikinn áhuga á tísku og öllu sem henni við kemur. Ég hef haldið úti tískubloggi á ensku í rúmt hálft ár og hef fengið góð viðbrögð. Ég vildi samt opna blogg á íslensku þar sem ég tók eftir því að töluvert af Íslendingum skoðuðu hitt bloggið.

Ég mun aðallega blogga um tísku; þá sýningarnar, hönnuði, módel, trend, stíl hjá stjörnunum, förðun, fegurð og ýmislegt annað tilfallandi.

Ég vona að þið eigið eftir að hafa gaman af og endilega skiljið eftir ykkar skoðun í commentunum!


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband